Nokia 2610 - Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia

background image

Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia

Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til að tryggja að þú fáir rafhlöður frá Nokia skaltu kaupa þær hjá
viðurkenndum söluaðila Nokia, ganga úr skugga um að 'Nokia Original Enhancements' táknið sé á umbúðunum og skoða
heilmyndarmiðann á eftirfarandi hátt:

Þó svo að þessum fjórum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé sannvottuð. Ef
þú hefur minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé ekki ósvikin Nokia rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara með
hana til viðurkennds þjónustu- eða söluaðila Nokia. Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna sannvottun
rafhlöðunnar. Ef ekki er hægt að staðfesta sannvottunina skaltu skila rafhlöðunni til verslunarinnar þar sem þú keyptir hana.

Sannvottun heilmyndar

1. Þegar þú horfir á heilmyndina á miðanum ættirðu að sjá Nokia-handabandstáknið frá einu

sjónarhorni og 'Nokia Original Enhancements' táknið frá öðru.

2. Þegar þú snýrð heilmyndinni til vinstri, hægri, upp eða niður ættirðu að sjá 1, 2, 3 eða 4

punkta, allt eftir staðsetningu hennar.

background image

32

Copyright © 2006 Nokia. All rights reserved

.

3. Skafðu hliðina á miðanum og þá á að koma í ljós 20-stafa tala, t.d. 12345678919876543210.

Snúðu rafhlöðunni þannig að tölurnar vísi upp. 20 stafa talan byrjar í efri röðinni og heldur
áfram í neðri röðinni.

4. Staðfestu að 20-stafa kóðinn sé gildur með því að fylgja leiðbeiningum á www.nokia.com/

batterycheck.

Textaskilaboð eru gerð á eftirfarandi hátt:

Fyrir Asíulönd við Kyrrahaf, að Indlandi undanskildu: Sláðu inn 20-stafa töluna, t.d.
12345678919876543210 og sendu hana á +61 427151515.

Aðeins fyrir Indland: Sláðu inn “Rafhlaða”, þá 20-stafa töluna, t.d. Rafhlaða 12345678919876543210, og sendu hana á
5555.

Gjaldskrá innlendra og erlendra símafyrirtækja gildir.

Þá áttu að fá skilaboð sem segja til um hvort hægt er að sannvotta töluna eða ekki.

Hvað ef rafhlaðan er ekki ósvikin?

Ef þú getur ekki staðfest að Nokia-rafhlaðan með heilmyndinni á miðanum sé ósvikin Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota
rafhlöðuna. Farðu með hana til næsta viðurkennda þjónustuaðila eða sölustaðar Nokia til að fá aðstoð. Notkun rafhlaða sem
eru ekki samþykktar af framleiðanda getur verið hættuleg. Hún getur jafnframt leitt til þess að tækið og aukahlutir þess virki
ekki sem skyldi eða skemmist. Notkun þeirra kann jafnframt að ógilda allar þær samþykktir eða ábyrgðir sem eiga við tækið.

Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia rafhlöður er að finna á www.nokia.com/battery.

background image

33

Copyright © 2006 Nokia. All rights reserved

.